Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Bloggar

Loksins !! Legg inn pöntun !!

Þessu er ég búin að bíða lengi eftir ! Ég skrifaði einmitt undir á listann hjá katrin.is á sínum tíma.

Ég hef alltaf sagt að ég skyldi kaupa allann kassann ef þetta kæmi á DVD og nú verður sko staðið við það! Ekki verra að styrkja svona gott málefni í leiðinni.

Ég hef alltaf verið fóstbræðra-fan. Allt frá því að ég sá fyrsta atriðið í fyrsta þættinum;

( "Þú ert rekinn! .... hann kallaði mig dreka!!!" ) 

hef ég verið dolfallin. Ég get ekki beðið eftir að sjá þetta aftur. Ég á eitthvað af þáttum á spólu, sem ég tók upp, en ég á ekki video-tæki !

( "ahhhh zú ekki kaupa video? .... zú kaupa sjónvarp!! .... nei ég vil ekki kaupa sjónvarp. Ég vil bara fá nýtt video-tæki í staðin fyrir þetta ónýta videotæki sem þið selduð mér í gær!! " )

Ég get alltaf vitnað í Fóstbræður. Ég og Sigga vorum svakalegar á tímabili :-D Við kunnum þetta allt !! Ég man þetta ennþá og er oft að grípa í einhverjar setningar ! Svo er hlegið eins og kjáni !

Sigga á meira að segja afmæli í dag... 24.8. :-D til hamingju !

( " Konur eru sick ..... djöfull hlakka ég til þegar ég er orðinn gamall og ljótur, og þetta hættir !! " )

( " það er fjall framundan og þú veist það!! ... ég sé ekki neitt fjall!! ... djöfull geturu verið leiðinlegur maður !! " )

Strúnus ofurhetja, leigubílstjóri dauðans, vitleysingarnir, afi gamli, Brynhilde, persónulegi trúbadorinn, ríða-sjúga-sleikja, mússí-mússí, rúskí-karamba, konan sem konni bara að elda bjúgu .....

 

.... ég get haldið endalaust áfram!!!


mbl.is Allt Fóstbræðrasafnið á DVD
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ég á ekki fugl á veggnum :-(

Ég var ekki heima þegar leirgerðin opnaði, svo gleymdi ég að mæta í páskavikunni.

Við mæðgurnar hefðum sko alveg viljað eiga fugl á veggnum.

Ég hef ekki séð verkið live, bara á netinu, og mér sýnist þetta bara koma nokkuð vel út :-)

 

 


mbl.is Fuglar himinsins vígðir í Ísafjarðarkirkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er líkt með fellibyljum og konum? :-D

Þegar þær koma eru þær heitar og rakar.

En þegar þær fara þá taka þær húsið og bílinn !!

LoL  hehe


mbl.is Fellibylurinn Flossie stefnir á Hawaii
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá...

Þetta grjót er sko ekkert lítið! Frown

Ég bíð spennt eftir göngunum úteftir. Ég er bara hrædd að keyra þarna.

Samt er soldið furðulegt að svona grjótflykki virðast oftast falla á nóttinni. Sem betur fer!!!  segi ég nú bara!!  Það eru ófáir bílar sem fara þarna um á hverjum degi, og ekki að spyrja að leikslokum ef þetta hefði farið á bíl !

 Göngin strax !!


mbl.is Stórir grjóthnullungar féllu á Óshlíðarveg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lagið situr í minningunni :-)

WhistlingWhistlingWhistlingWhistlingWhistlingWhistlingWhistlingWhistling

Du du du, du du du du du duuuu, du du du du du duuuuuuuuuu !

du du du du du du du du du du, du du du du du duuuuuuuuu!

 

LoL hehe


mbl.is Búningar Dallas boðnir hæstbjóðandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

3+4+4+1+1 = 14??

hahaha LoL

 

Alls voru fjórtán karlmenn teknir og á öllum aldri.

  • Þrír voru undir tvítugu,
  • fjórir á þrítugsaldri,
  • fjórir á fertugsaldri,
  • einn á sjötugsaldri og
  • einn á áttræðisaldri.

Þetta eru nú bara 13 karlmenn, en sá síðastnefndi var tekinn tvívegis. 


mbl.is 17 ölvaðir undir stýri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hver er maðurinn?

mig langar líka að vita hver hraðinn var...

 Eða var drengurinn í dulargervi?  Ninja 


mbl.is Skotfastur Garðbæingur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Linda Pé
Linda Pé
Ég er heimsins besta Linda...

Færsluflokkar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband