25.6.2007 | 14:40
Kann Henry ekki íslensku??
... eða eru það blaðamenn mbl.is sem eru sekir??
,,Mig hlakkar mikið til að spila með Barcelona ....."
Á ekki að segja "ég hlakka til" ??
Þannig lærði ég það og býð mig fram til að hitta Henry og kenna honum rétt málfar!! ;-)
ps.. þeir voru líka fljótir að breyta fréttinni eftir að ég bloggaði ;-)
Henry stóðst læknisskoðun hjá Barcelona | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- September 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Athugasemdir
Og dugði þó ekki til. Í fréttinni er enn þessi setning:
Ég lít á það sem mikinn heiður að spila fyrir Barcelona og öllum þeim frábæru fótboltamönnum sem hér eru," sagði Henry við vef Barcelona.
Veit ekki hvaðan þágufallið í 'öllum' kemur. 'Fyrir' tekur þolfall. Kannski átti forsetningin 'með' að koma þarna, þar sem hann væntanlega hlakkar til að spila með fótboltamönnum en ekki fyrir þá.
Mogginn virðist hafa ráðið einhvern í sumarafleysningar sem er óvenjuslæmur í málinu.
Kristín M. Jóhannsdóttir, 25.6.2007 kl. 15:16
Já, ég tók nú ekki eftir þessu :-)
Mér lá svo mikið á að koma þessu að.
Linda Pé, 26.6.2007 kl. 11:13
Ég er með þágufallssýki á háu stigi og reyndi mikið að læknast af henni fyrir nokkrum árum síðan, en það gekk ekki upp. Þá ákvað ég berjast fyrir því að gera þágufallssýki að löglegri íslensku, eiginlega þróun á íslensku máli. Ef tungan hefði ekki þróast þá værum við enn að segja "ek" í stað "ég" til dæmis.
Ég legg til að þágufallsnotkun verði leyfð. Mér hlakkar nefnilega til þess dags að geta talað rétt mál.
Mummi Guð, 28.6.2007 kl. 23:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.