Færsluflokkur: Bloggar
23.5.2008 | 11:08
Ég segi bara nei !
Mér finnst alltí lagi að hafa þetta svona eins og þetta er. Ég treysti mér alveg til að ákveða sjálf hvenær 5 ára dóttir mín fær eitthvað sem hún biður um.
Ef ég segi nei, þá er það bara allt í lagi... hún fer ekkert að væla eða suða :-)
Vilja gos og sælgæti frá kössum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2008 | 08:38
11,6 kíló árið 2005 !
Ég tók mig til eitt árið og safnaði ruslpósti í nákvæmlega eitt ár! Afhverju ?? ... bara langaði til þess !
Frá 1. janúar - 31. desember 2005. Og bara það sem kom í póstkassann minn. Ég setti ekkert þarna sjálf! Tek það fram að í þessu eru auðvitað ekki dagblöð, bara auglýsingablöð og annað sem flokkast sem rusl póstur. Ég bý á Ísafirði og það er töluvert minna um ruslpóst hér en td. í Reykjavík. En þetta er útkoman:
Janúar - 600 gr
Febrúar - 375 gr
Mars - 550 gr
Apríl - 1150 gr
Maí - 1025 gr
Júní - 875 gr
Júlí - 800 gr
Ágúst - 875 gr
September - 575 gr
Október - 1950 gr
Nóvember - 1325 gr
Desember - 1550 gr
Samtals 11,650 kg
Mest var þarna í október eða 1950 gr. af auglýsingabæklingum!!
Já, ég veit... ég er KLIKKUÐ !
Hægt verði að hafna fjölpósti | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
2.5.2008 | 13:25
Þetta er ekki baktería !
Þetta er sníkjudýrið Giardia lamblia
Bakteríur líta allt öðruvísi út. Þeir ættu að taka aukaeiningar í líffræði þessir blaðamenn.
Eða allavega kanna uppruna myndanna sem þeir setja með fréttunum.
Væri nær að nota bara þessa mynd! Þetta eru alvöru bakteríur
Þróun ónæmis gegn sýklalyfjum hafin hér | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.4.2008 | 08:19
Sokkabandið Nylon
Nylon eykur sölu á sokkabuxum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.3.2008 | 09:10
Karlakórinn heitir Ernir, ekki ernir
um Ernir, frá Erni, til Ernis...
ekki Örnum :-)
En þeir settu upp hanskana þegar þeir sungu Júróvisjón lagið "Hvar ertu nú?"
SJIPP OG HOJ !!!!
Ég var í hliðarsalnum en heyrði því miður ekki nógu vel og sá lítið. En þeir voru rosalega flottir. Þetta var alveg frábær hátíð og æðisleg stemmning.
Mugison, Hjálmar, Hraun, Sign, SSSól, Eivör, Megas, xxxRottweiler.... gæti haldið endalaust áfram :-P
Karlmenn með gula hanska | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.3.2008 | 13:39
hver er laus allra mála?
Það kemur ekkert fram
Er mamman laus við að borga þetta, ....eða er það skólinn sem er laus?
Laus allra mála án tryggingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.3.2008 | 09:13
heitir hann ekki Howard K. Stern ??
Ekki er það Harry???
... það er Larry
En gott að málinu er að ljúka og að þau feðginin fái frið frá the crazy papparazzi
Dóttir Önnu Nicole Smith erfir móður sína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2008 | 22:50
var lent á tunglinu 1969 ??
Ég held ekki.
Afhverju er þá ekki búið að fara aftur?? Öll þessi tækniþróun undanfarna áratugi ætti nú að gera það kleift að senda annað geimfar til tunglsins....
Ég held að það sé ekkert hægt að lenda á tunglinu.. skreppa út í tungl-göngutúr og ræsa svo bara skutluna aftur eftir nokkra tíma og bruna af stað til jarðar!
"I don't wanna close my eyes, I don't wanna fall asleep 'cause I'd miss you babe, and I don't wanna miss a thing!"
Almyrkvi á tungli annað kvöld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
7.12.2007 | 13:47
afhverju ruslapoka??
"Því næst voru mennirnir klæddir í ruslapoka til að líkja eftir pilsum.... "
Afhverju voru þeir ekki bara settir í pils???
Í kvenmannsföt til að skilja þarfir kvenna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.11.2007 | 08:47
gluggasleikir og giljagámur :-D
Í einhverjum af fíflalátum okkar, skrifuðum við vinkona mín öll jólasveinanöfnin og víxluðum þeim.
Úr þessu urðu til tæplega 130 ný og asnaleg jólasveinanöfn. Sum alveg óborganlega fyndin.
tökum til dæmis Giljasleikir, Kjötskellir, Hurðastúfur, Þvörukrækir, Stúfnasníkir, Kertagaur !!
Það var mikið hlegið þetta kvöld
Jólasveinar moka inn milljónum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júlí 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Nóvember 2009
- September 2009
- Júlí 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007